Þjónusta
- Boðið er upp á leiðsögn fyrir minni og stærri hópa gegn gjaldi.
- Hægt er að leigja afnot af sölum Safnasafnsins til funda, samkvæma og tónleika samkvæmt nánara samkomulagi.
- Safnasafnið veitir sértæka ráðgjöf um alþýðulist ef þess er óskað.
- Safnasafnið tekur að sér að flytja fyrirlestra um alþýðulist og rannsóknir sem farið hafa fram á vegum safnsins.
- Safnasafnið lánar verk úr safneign tímabundið til annarra safna, til sérstakra sýninga eða til rannsókna samkvæmt nánara samkomulagi. Höfundur á ætíð rétt á því að fá verk sín lánuð á eigin sýningar. Lántakendur þurfa að uppfylla skilyrði safnsins um tryggingar og öryggismál.
- Safnasafnið veitir fræðimönnum aðgengi að skráningu og heimildum samkvæmt nánara samkomulagi. Einnig er í boði fræðimannsíbúð, sjá nánari upplýsingar hér.
- Skv. skipulagsskrá getur safnið tekið gjald fyrir veitta sérfræðiþjónustu, miðlun, lán á listaverkum og ljósmyndir af þeim, sérunnar skrár og úrtak tölvugagna.