Safnasafnið
Safnasafnið kynnir Listveislu 1
SAFNASAFNIÐ - ALÞÝÐULIST ÍSLANDS - 15 ÁRA
félagar í Geðlist, Akureyri, hafa umbreytt og kynna undir
yfirskriftinni: Inn og út um gluggann. Bifreiðin er þakin gervigrasi að
innan og utan, og þegar kíkt er á glugga blasa við leikföng og leiktækiStyttur Ragnars Bjarnasonar taka á
móti gestum á pöllunum fyrir utan eins og undanfarin ár. Unnið er að
við-gerð þeirra og sjá gestir þess glögg merki í sumarÍ anddyri er sýning á verkum eftir
Ágúst Jóhansson, Hvammsstanga, Guðrúnu Nielsen, Kópavogi, og Svein
Einarsson frá Hrjót í Eiðaþinghá, EgilsstöðumÍ Miðrými er nýstárleg safnkynning þar
sem blandað er saman framsækinni nútímalist, alþýðulist, vöruhönnun,
handverki, leikföngum, minnjagripum, kertum, kandís, fræjum og hári  Í Brúðusafni er endurgerð grunnsýning
með þjóðbúningabrúðum, brúðuhúsi, leikföngum og fatnaði á brúður; þar
er einnig styttan Madonna eftir Sæmund Valdimarsson, ReykjavíkÍ Veitingasal eru regnbogamyndir
eftir börn í Leikskólanum Álfaborg, Svalbarðseyri, og leikföng sem í
sólskini mynda regnboga og upplýsta litafletiÍ Vestursal er samsýning á listaverkum
eftir Önnu Hallin og Olgu Bergmann,  Reykjavík. Þær fundu ummerki um
áður óþekkta siðmenningu og einstakt vistkerfi í garði safnsins og
tengja þann fund listaverkum á sýningu sinniÍ Austursal er haldið upp á 80 ára
afmæli Sólheima í Grímsnesi með fjölbreyttri sýningu, sem er framlag til
Listar án landamæra og viðleitni safnsins til að halda tengslum við
sérstæða listsköpun Í
Svalbarðsstrandarstofu er haldið upp á aldarafmæli
Ungmennafélagsins Æskunnar með sýningu á eldri og yngri gögnum, og er
sýningin afrakstur af umfangsmikilli heimildaleit, yfirlestri og
frumrannsóknum - sem bíða frekari umfjöllunar og úrvinnsluÍ Verslun Ásgeirs G. Gunnlaugssonar & Co er sýnishorn af útsaumi Þórveigar Sigurðardóttur frá Sleitustöðum,
Skagafirði, einnig á öskupokum keyptum úr dánarbúi Halldórs Hansen
barnalæknis, Reykjavík, útsaumaðir og málaðir af Ólafíu Vilborgu
Þórðardóttur móður hans á fyrsta þriðjungi 20. aldar  Í Bókastofu er safnsýning á málverkum
eftir  Jón Ólafsson, Reykjavík, pappaverkum eftir Söru Vilbergsdóttur,
Reykjavík, og skóm eftir Atla Viðar Engilbertsson, AkureyriÍ Langasal er sýning á tálguverkum
o.fl. eftir Hálfdán Ármann Björnsson, Hlégarði í Aðaldal, máluðum
steinum eftir ekkju hans, Bergljótu Benediktsdóttur, og klippimyndum
eftir ömmu hans, Þóreyju Jónsdóttur frá Daða-stöðum í ReykjadalÍ Norðursölum eru 3 einkasýningar,
þrívíð verk eftir Þór Vigfússon, Djúpavogi, ljósmyndaverk úr Endangered
Waters eftir Rúrí, Reykjavík, og innsetning um togstreitu tungumálsins
eftir Níels Hafstein, Svalbarðsströnd, en sýningu hans lýkur
laugardaginn 10. júlíÞann 11. júlí, á Íslenskum safnadegi,
verður opnuð sýning á fjölfeldinu Listveislu 1, með verkum eftir 23
listakonur í Eyjafirði og á höfuðborgarsvæðinu. Listveisla 1 er gerð að
frumkvæði safnsins, styrkt af Menningarsjóði kvenna (Hlað-varpanum),
Menningarráði Eyþings og Rarik. Hægt verður að skoða myndir af verkunum á
www.safnasafnid.isSafnasafnið
er opið daglega frá 10.00 - 18.00 fram á haust. Litprentuð sýningaskrá
kemur út 19. júní og færð inn á vefsíðuna um leið, þá er verið að
undirbúa sérstakar kynningarsýningar á síðunni og verða þær opnaðar
síðar í sumar. Verið er að skipuleggja sýningar næstu fjögurra áraGestum
er bent á kaffihús safnsins og 76 m2 íbúð sem er til leigu (nánari
upplýsingar eru til reiðu í móttökunni)  Allir eru hjartanlega
velkomnir í Safnasafnið á Svalbarðsströnd til að njóta afmælisársins með
okkur: Níels Hafstein, Magnhildur Sigurðardóttir, Harpa