Safnasafnið

Skapað úr safnkosti:Safnasafnið ætlar að nýta fyrirliggjandi gripi í vörulínu til sölu í verslun sinni; um er að ræða stórar sem smáar heildir sem falla

Verslun

Skapað úr safnkosti:

Safnasafnið ætlar að nýta fyrirliggjandi gripi í vörulínu til sölu í verslun sinni; um er að
ræða stórar sem smáar heildir sem falla ekki að söfnunarstefnu, en hafa borist sem
gjafir án gjafabréfa og skilyrða, eða verið keyptar í þeirri von að hægt yrði að nýta þær
til einhvers í framtíðinni. Stærstu heildirnar eru í þúsundum eintaka
Farið verður yfir þessi söfn og það tekið frá sem hugsanlega væri hægt að bjóða til sölu
á uppboðsvefjum eða ástríðufullum söfnurum sem ávallt eru á höttunum eftir
einhverju sem gæti bætt það sem þeir eiga fyrir, og er þá einkum átt við útgáfuraðir
vegna viðburða, hátíða og afmæla
Fyrsta vörulínan er gerð úr eldspýtnabréfum og -stokkum, ca. 30 sm háir karlar og
kerlingar. Önnur vörulína verður úr sérvéttum: armband, barmblóm, hálsfesti, hanskar
og hattur, slæða, skór, veski og vesti, jafnvel kjóll og jakki. Líklega verður leitað eftir
samstarfi við Vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands um þróun og framsetningu, og
gæti verið lokaverkefni, eða unnið af nýútskrifuðum afburða einstaklingi sem gæti
hugsanlega fengið styrk úr sjóðum Impru. Afraksturinn verður sýndur í safninu

Safnasafnið hefur síðan hug á því að efna til nýsköpunarvinnu í alþýðlegri minjagripagerð
sem byggir á menningararfi Íslendinga

Hugmyndirnar verða settar fram af lærðu listafólki, og nýnæmið felst í því að búnir eru til
stórir flokkar. Ákveðinn kjarni úr hvorum þeirra verður settur á markað til að byrja með,
en síðan bætt við verkum á hverju ári þannig að þau höfði til fólks sem safnar öllum eintökunum

    

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf