Safnasafnið

Luice Ross, eigandi Luice Ross Gallery á Broadway, New York, í bréfi 11. 6. 1996: „One of the highlights of my trip was seeing your extraordinary

Umsagnir

Luice Ross, eigandi Luice Ross Gallery á Broadway, New York, í bréfi 11. 6. 1996: „One of the highlights of my trip was seeing your extraordinary collection. Thank you so much for letting me share in your aesthetic experience“  

Halldór Björn Runólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands, í Morgunblaðinu 9. 6. 1999: „Fáir staðir vekja jafnkröftug viðbrögð ferðamanna í Eyjafirði og Safnasafnið á Svalbarðsströnd og hví skyldu menn halda aftur af sér þegar jafn sérstætt og skemmtilegt safn verður á vegi þeirra“  

Ólöf Nordal, myndhöggvari, í meðmælabréfi 23. 3. 2005: „Magnhildur Sigurðardóttir og Níels Hafstein hafa um langa hríð unnið gríðarlega merkilegt starf við söfnun, varðveislu og endurmat á alþýðulist og alþýðumenningu. Þau hafa komið upp ótrúlega fjölbreyttu og frumlegu safni verka og bjargað þannig menningarverðmætum frá glötun“  

Anna Jóhannsdóttir, útdráttur úr ritgerð við Háskóla Íslands 2005, Mismunandi fjársjóðir, samanburður á hugmyndafræði Safnasafnsins og Listasafns Íslands: „Safnasafnið á Svalbarðsströnd leitar og fagnar uppruna sköpunarkraftsins sem neista sem býr í hverjum einstaklingi, hverju verki og umhverfinu öllu. Starfsemi þess minnir okkur á að það þarf ávallt að endurnýja þessa orku sköpunarinnar“

Umsögn stjórnar Eyrarósarinnar er hún tilnefndi safnið til verðlaunanna 15. 2. 2007: „Sérstaða Safnasafnsins í íslensku safna- og sýningarhaldi er óumdeild, en safnið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi. Með metnaðarfullu starfi árum saman hefur tekist að skapa einstakan ramma utan um alþýðulist, nýrri list og handverk af ýmsu tagi. Sýningar safnsins hafa borið faglegum metnaði gott vitni og sérstök verkefni safnsins og sýningar stefna saman ýmsum listastefnum og tvinna saman starf hámenntaðra listamanna og áhugafólks. Frumkvæði einstaklinga í þessu einstaka safni er aðdáunarvert”

Ragna Sigurðardóttir, listrýnir á Morgunblaðinu, í kynningargrein í 17. 7. 2007: “Heimsókn í Safnasafnið er einstök upplifun hér á landi og þótt víða væri leitað. Staðsetning þess og gróið umhverfi er afar friðsælt og fallegt. Sá samhljómur milli listarinnar, alþýðulistarinnar og náttúrunnar, sem safnið sækist eftir að skapa, virðist ætla að ganga upp áreynslulaust, og að mínu mati hefur hér verið unnið þrekvirki, að mestu leyti í sjálfboðavinnu sem seint mun færa stofnendum fé, en þess í stað ómælda ánægju öllum þeim er heimsækja safnið” 

Þórunn Sigurðardóttir, listrænn framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík, í bréfi til NH 3. 9. 2007: “Það er heiður að vinna með frumkvöðli sem bæði er kröfuharður og framsýnn, sem hefur lyft grettistaki við erfiðar aðstæður eins og þú hefur gert.”

Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri, í samtali við NH þegar hann heimsótti safnið 7. 9. 2007: “Þetta er fallegasta og skemmtilegasta safn landsins!”

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf