Safnasafnið

Safnasafnið var stofnað 1995 af Magnhildi Sigurðardóttur og Níelsi Hafstein, með þeim í stjórn eru myndlistarmennirnir Harpa Björnsdóttir,

Um Safnasafnið

Safnasafnið var stofnað 1995 af Magnhildi Sigurðardóttur og Níelsi Hafstein, með þeim í stjórn eru myndlistarmennirnir Harpa Björnsdóttir, Magnús Pálsson og Ragnheiður Ragnarsdóttir, búsett í Reykjavík

  Safnasafnið annast fjölbreytt lista- og menningarstarf sem hefur vakið drjúga athygli, heima og erlendis. Það á nú þegar megin hluta bestu eintaka af Alþýðulist Íslands og er, með samlegðaráhrifum, eitt af þrem mikilvægustu listasöfnum þjóðarinnar. Þessi ánægjulega staðreynd er grundvölluð á bjargföstum vilja og markvissri skipulagðri landssöfnun hugsjónafólks sem horfði uggandi til þess að alþýðumyndlist þjóðarinnar glataðist, og hefði tvímælalaust gert það að mestu ef þeirra hefði ekki notið við. Um 4000 listasverk eru í vörslu safnsins, búin til af ýmsu tilefni á 40 ára tímabili, í ólíkum stílum og myndhugsun, einnig tugþúsundir gripa sem settir eru upp í sérdeildum eða notaðir á sýningum til að skerpa á myndhugsun eða ögra gestum safnsins. Viðbrögð viðurkenndra erlendra sérfræðinga hafa verið þessi: Bylting í safnrekstri, nýstárleg hugsun og ferskur andblær, snilldarbyggingar, fagurfræðilegt samspil heimilis, safns og garðs  Safnasafnið er í stöðugri endurskoðun og sjálfsgagnrýni og tekur því á sig skarpari mynd með hverju árinu sem líður. Hlutverk þess verður æ víðfeðmara og sú hugsun er ríkjandi að það eigi að höfða til barnsins í manninum jafnt sem barnanna sjálfra, efla í leik og starfi þau gildi sem ráða við sköpun listar, hreina sýn, sjálfsprottna framsetningu, móttækileik, undrun, kímni, saklausa frásögn og tjáningu Safnasafnið vill opna augu fólks fyrir fegurð mismunandi hluta og minninga, samhljómi persónulegrar iðju og fjöldaframleiðslu en ekki síst þeirri miklu sjálfsábyrgð sem safnið axlar með varðveislu stórkostlegra menningarverðmæta - og rís undir þeim þunga. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að Safnasafnið hljóti þá stöðu innan væntanlegra nýrra laga um safnstarfsemi á Íslandi, að það geti sinnt þeim fjölmörgu brýnu verkefnum sem bíða, og lúta að forvörslu, rannsóknum, skrifum og útgáfum

Safnasafnið skerpir og dýpkar alþjóðlega nálgun, stenst ítrustu kröfur um fagmennsku og ábyrgð, nærir hugsjónir sínar og kynnir frumlegar hugmyndir; það er gagnvirkt, flott og óútreiknanlegt

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf