SÖFNUNARSTEFNA
Að safna verkum eftir
alþýðulistarmenn, uppfinningamenn, hagleiksmenn, einfara og þá
listamenn sem hverju sinni vinna undir áhrifum frá verkum
ofangreindra manna
Að safna búshlutum,
hagleiksverkum, leikföngum, listiðnaði, líkönum, ljósmyndum,
minjagripum, uppfinningum, vélum og tækjum, og ýmsu öðru því
efni sem orðið gæti til nýbreytni í sýningum og varpað ljósi
á fortíð og líðandi stund
Að safna munum og heimildum er tengjast viðfangsefnum og hugmyndum, lífsstarfi og minningum ofangreindra manna. Að safna listaverkum úr öllum landsfjórðungum, eldri eintökum ef hægt er, en fyrst og síðast verkum sem búin eru til á líðandi stundu og lýsa því sem gerist í íslensku þjóðlífi
SÝNINGARSTEFNA
Að vera vakandi fyrir frumlegum viðhorfum og efna til sýninga og viðburða sem eru í lifandi tengslum við menningu þjóðarinnar
Að hafa í heiðri jafnrétti kynjanna í sýningum safnsins, að einkasýningar kvenna séu jafnmargar og karla; eða vegna innbyrðis ójafnvægis, ef eitthvert er, að hafa fleiri þátttakendur annars kynsins á samsýningum
Að efna til sýninga eftir fatlaða listamenn, hvort heldur sem þeir glíma við einhverfu, misþroska, geðtruflanir eða alvarlega líkamlega sjúkdóma s.s. Alzheimer og Parkinsson, eða eru illfærir um að tjá sig að öðru leyti
Að efna til samstarfs við listasöfn, listhús, stofnanir og félög fatlaðra, eldri borgara og fanga, eins og við verður komið
Að fá til samstarfs lærða listamenn, kunna sem ókunna, ef þeir búa til verk sem eru á mörkum alþýðulistar, ýmist vegna beinna áhrifa, eða upplags sem hefur lifað af strangan námsferil heima og erlendis
Að efna til sýninga sem byggjast á rannsóknum á listsköpun í jöðrum samfélagsins, hjá sérvitringum og einförum, fíklum og öðrum þeim sem lífið hefur leikið grátt og eiga sér varla viðreisnar von - nema kannski í gegnum skapandi túlkun og tjáningu
Að efna til sýninga á safnkosti sem vekur upp nýjar spurningar, eða orka sem frumlegt innlegg í safnstarfið
Að efna til markvissra kynninga á heimasíðu og hafa krækjur í síður er varða söfnunarstefnu (s.s. í gagnagrunn Landsbókasafns Íslands um alþýðulist í gömlum handritum)
Að vera stöðugt vakandi fyrir nýjum möguleikum í samslætti hugmynda og hluta sem gætu farið vel saman á sýningum, og að brjóta sífellt upp hefðir og mynstur með ögrun og hraðvirkni

