Safnasafnið

SAFNGESTARÁÐ er skipað 7 einstaklingum, 5 búsettum í Eyjafirði, 2 í Reykjavík, sem eru n. k. fulltrúar fyrir almenna gesti eða markhópa

Safngestaráð

SAFNGESTARÁÐ er skipað 7 einstaklingum, 5 búsettum í Eyjafirði, 2 í Reykjavík, sem eru n. k. fulltrúar fyrir almenna gesti eða markhópa Safnasafnins; þeir mega hvorki vera skyldir né tengdir fólki í stjórn þess. Ráðið er myndað til 3ja ára og framlengist tíminn um 1 ár í senn. Það starfar sjálfstætt án afskipta safnstjórnar en þróar verkefni sín í samræmi við neðangreint - og stendur til boða aðstaða til fundarhalda í safninu hvenær sem er


SAFNGESTARÁÐ Safnasafnsins er hið eina sinnar tegundar, einstaklingar innan þess búa yfir mikilli reynslu og menntun sem gerir þeim kleyft að sinna starfi sínu af faglegri hæfni. Ekki var leitað fyrirmynda erlendis um safngestaráð (visitors panel) því verksvið þeirra er skilgreint of þröngt. Í erlendum söfnum eru sérfræðingar á flestum sviðum og sýningar metnar af sjálfstæðu kunnáttufólki, þannig að ekki er eins mikil þörf á aðfenginni gagnrýni og hérlendis


SAFNGESTARÁÐ gegnir ábyrgðar- og virðingarstöðu og mun með starfi sínu, að öllum líkindum, hvetja til stofnunar nýrra ráða, vekja athygli einstaklinga og fyrirtækja á Safnasafninu og öðrum söfnum og menningarstofnunum þjóðarinnar um leið. Ráðið getur því haft mótandi áhrif á viðhorf stjórnvalda og almennings til safna í framtíðinni


SAFNGESTARÁÐI er ætlað það hlutverk að hafa jákvæð áhrif á starfsemi safnsins, gagnrýna það og meta. Það hugleiðir ný verkefni sem þarfnast hugkvæmni og eftirfylgni, kemur með uppástungur um kaup á kjörgripum sem safnstjóra er ókunnugt um og tekur jafnvel þátt í umræðum um starfsstefnu safnsins á komandi árum


SAFNGESTARÁÐ metur aðgengi gesta inni og úti, þarfir og aðstöðu fatlaðra, merkingar, fylgitexta, orðanotkun, þýðingar, sýningar og sýningaskrár, vefsíðu, leiðsögn og skemmtun, bókastofu, sýnileg skólaverkefni, vörulínur, veitingar og verðlag, samspil milli sýninga og hæða, áherslur, liti, flæði, sjónlínur o.fl. (sjá: Umföllunarefni)


SAFNGESTARÁÐ getur, ef það vill, skilgreint markhópa safnsins og aldurssamsetningu og kannað hvernig hægt sé að ná til fleiri einstaklinga og hópa, innlendra sem erlendra. Í því samhengi hugar það að félagslegri, hugmynda- og fagurfræðilegri stöðu safnsins, og hvernig megi nýta hana til að laða fólk að safninu og kynna það sem víðast. Ekki er gert ráð fyrir umræðum um hjúskap, kynhneigð, nám, tekjur, trú og veikindi


SAFNGESTARÁÐ kynnir niðurstöður sínar fyrir safnstjóra, sem semur spurningalista á grundvelli þeirra til könnunar á viðhorfum almennra gesta, verða þeir látnir auka í um sumarið og gestir hvattir til að svara þeim. Mat Safngestaráðs og niðurstöður kannana verða kynntar á vefsíðu, senda fjölmiðlum og birtar í ársskýrslu safnsins


SAFNGESTARÁÐ getur, að eigin frumkvæði, lagt fram hugmyndir um öflun viðurkenninga og styrkja fyrir t.d. erlent samstarf, listaverkakaup, upplýsinga- og tölvumál, leikfanga- og tækjakaup, forvörslu, viðhald og byggingarframkvæmdir


SAFNGESTARÁÐ fær afslátt í safnverslun, hátíðarkvöldverð á heimili stofnenda og gjafir í þakklætisskyni fyrir vel unnin störf. Meðlimir ráðsins sem búa fyrir sunnan njóta uppihalds í safninu á meðan þeir starfa nyrðra (maí/júní er hentugur tími því að þá er búið að prufukeyra sýningar)


SAFNGESTARÁÐ endurnýjar sig sjálft ef einhver innan þess lætur af störfum; það getur leitað ráða hjá safnstjóra um nýjan einstakling. Ef ráðið ákveður að hætta starfsemi sinni áður en samningstími rennur út, eða ef safnstjórn telur ekki þörf á því lengur, þá ganga öll gögn til hennar, sem getur myndað nýtt ráð á þeim grunni síðar


SAFNGESTARÁÐ getur, Safnasafninu að meinalausu, og ef áhugi er fyrir því, víkkað starfssvið sitt og boðið öðrum söfnum þjónustu sína


SAFNGESTARÁÐ skipa: Bryndís Símonardóttir fjölskylduráðgjafi í Eyjafjarðarsveit, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir vöruhönnuður og Huginn Þór Arason myndlistarmaður í Reykjavík, Hlynur Hallsson myndlistarmaður á Akureyri, Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir hjúkrunarfræðingur á Grenivík, Sigríður Ágústsdóttir leirkerasmiður á Akureyri og Völundur Jónsson ljósmyndari á Svalbarðsströnd

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf