Formáli
Tekið
er við listaverkum, öðrum gripum og heimildum, í máli og myndum,
eftir reglum, til þess að styðja við formlega afhendingu til
eignar eða varðveizlu; er það samkvæmt alþjóðasamningum sem
tryggja hagsmuni beggja aðila; í gjafabréfum og
varðveizlusamningum er því vísað í Skipulagsskrá
Safnasafnsins, Höfundarréttarlög og Myndstef, sem byggja á slíkum
samningum um rétt milli aðila
1. gr
Safnasafnið
tekur við listaverkum og gripum, líka heimildum í máli og myndum,
skv. Skipulagsskrá
2. gr
Safnasafnið
leggur mat á efni, fyrir undirritun gjafabréfa og
varðveizlusamninga, og kannar hvort það fellur að safneign.
Skjalfest eigendasaga fylgi, eða ákveðinn ferill, sem má rekja
til fyrri sýninga.
3.
gr
Safnasafnið
tekur á móti [rýmisfrekum] heildum sem unnar eru upp úr
heimildum, reistar á leyfum, yfirlegu og frumrannsóknum, þ.e. ef
þær snerta aðalviðfangsefni safnsins: Alþýðulist Íslands.
Nauðsynlegt er að ítarefni fylgi með, tölvugögn, ljósmyndir
og krækjur í greinar á netinu, enda þarfnast gjöfin skoðunar og
rannsókna svo hún verði síðar eftirsóknarverð birtingarmynd
með nýrri áherslu
4.
gr
Safnasafnið
þiggur einfaldar leiðbeiningar eða athugasemdir með gjöfum, en
hafnar skilyrði og/eða eftirliti sem setur skorður á einhvern
hátt; safnið leggur ekki til hugmyndir um not af gjöfum, enda er
litið svo á að þær geti hamlað rannsókn, fræðslu, sýningum,
útgáfum og umfjöllun í framtíðinni
5.
gr
Safnasafnið
fer með öll listaverk, gripi, ljósmyndir, heimildir eða verk sem
eru byggð á heimildum, skv. Höfundarréttarlögum, Myndstefi og
ákvæðum Skipulagsskrár, einnig skv. áherslum í mótun og þróun
innan safnsins og taka jafnt mið af hefðum og góðum siðum sem og
nýjum lögum og reglum
6.
gr
Safnasafninu
er heimilt að skrá gjafir og varðveizlur skv. skjali merkt: Móttaka
verka og heimilda;
sem og ljósmynda og skrá gjafir í tölvuforritið Virtcual
Collection eins og Safnalög mæla fyrir um
7.
gr
Safnasafninu
er bæði skylt og heimilt að fara með Gjafabréf og
Varðveizlusamninga á þann hátt að báðir aðilar séu
fullsæmdir af; um nánari útfærslur fer um eins og að ofan segir
- og menn sættast á
Eftirmáli
Safnasafnið
birtir gögn er málið varða á vefsíðunni: safnasafnid.is /
Safnið > Hringferill myndlistar / Lán á gripum / Móttaka verka
og heimilda / Skipulagsskrá / Starfsstefna / Sýningarstefna / o.fl

