1995
Safnasafnið stofnað 17. febrúar til þess að halda utan um alþýðulist þjóðarinnar, safna henni, ljósmynda og tölvuskrá, varðveita, rannsaka, kynna á sýningum, vefsíðu og bókum. Listasafn Íslands á samkvæmt lögum að safna alþýðulist en hefur frá upphafi leitt hana hjá sér, og þess vegna var ráðist í þetta yfirgripsmikla verkefni sem sér ekki fyrir endann á
1998
Tilraunir með sýningaform: litlar sýningar í öðrum stærri, 2-3 einkasýningar í sama rými og byltingarkenndar framsetningar á nytjahlutum og söfnunargripum svo þeir mynda órofa heild. Fyrsta sýning safnsins í Þinghúsinu hét 1. maí, innsetning sem fjallaði um starf ungrar stúlku á sjúkrahúsi á miðri síðustu öld og var líf hennar tengt saman með tækjabúnaði stofnunarinnar, bréfi og einkamunum. Var þetta í fyrsta skipti í sögu myndlistar á Íslandi sem almennir safnmunir voru settir í svo einkalegt samhengi og gaf tóninn út í lista- og safnalífið
1999
Barna- og unglingastarf Safnasafnsins hófst 1999 með samstarfi við Valsárskóla á Svalbarðseyri þegar ákveðið var að bjóða nemendum að vinna myndverk til sýningar á vegum safnsins, fyrst í garðinum norðan Valsár en á síðari árum í tengslum við ákveðin inniverkefni þar sem fullorðnir koma við sögu. Frá 2007 hefur Leikskólinn Álfaborg tekið þátt í starfseminni. Nemendur Grunnskólans í Grenivík, Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit og Myndlistarskólanum á Akureyri hafa lagt til gripi á sýningar í safninu, bæði inni og úti
2001
Hringur myndlistar, 16 þátta greiningarkerfi, sem skilgreinir alla þætti myndlistar og setur í samhengi. Það er stuttort, einfalt og auðlært, og er m.a. notað við tölvuskráningu listaverka í safninu og í leiðsögn til að skerpa sýn gesta á mismunandi forsendur, nálgun og leiðir að sameiginlegu markmiði: að skapa og tjá sig í listum
2002
Hugmyndasmiðja æskunnar er samstarf við börn og unglinga, byggð á hlutum í Leikfangasafni, sérverkefnum og umræðum, þrautum, sjónhverfingum og tækninýjungum, og er miðað við alla bekki í grunnskóla
2004
Skrá yfir 270 umfjöllunarefni sem söfn þurfa að hafa í huga í rekstri sínum (hefur verið send söfnum í Eyjafirði)
2008
Jóhannes Sveinsson Kjarval hefur í áratugi verið talinn einn af helstu frumkvöðlum íslenskrar myndlistar, en í viðtali við Hugin Þór Arason í tímaritinu Sjónauka sýndi NH fram á það með grundvallarrökum að Kjarval var alþýðulistarmaður. Svo ögrandi staðhæfing um ástsælasta listamann þjóðarinnar hefur verið tekið með kuldalegri þögn (menn koma ekki auga á tækifærið til að kynna Kjarval á alþjóðlegum markaði sem einn stórkostlegasta alþýðulistarmann sem uppi hefur verið og hækka þannig verðið á verkum hans langt umfam það sem tíðkast á Íslandi!)
2009
Skapað
úr safnkosti, hlutum sem hafa borist safninu án gjafabréfa eða
verið keyptir á mörkuðum til að fylla í hugsanlega eyðu, vera punktur
yfir I. Þeim er fengið nýtt hlutverk af frumlegu listafólki eða
breytt í minjagripi til sölu í
safninu (byrjað á eldspýtnastokkunum)
2009
Lista- og fræðimannsíbúð, sú eina í safni hérlendis, innréttuð í gömlum stíl í risi Kaupfélags Svalbarðseyrar, 1900, sem var flutt á lóð Þinghússins við Hringveginn 2006. Íbúðin er 76 m2, leigð innlendu sem erlendu ferðafólki á sumrin, nótt og nótt í senn, en annars viku í senn með afnot af sal til að vinna við pappírsverk, hugmyndir og heimildir
2009
Safngestaráð er 7 manna hópur fagmanna sem er ætlað það hlutverk að gagnrýna starfsemi safnsins, koma með tillögur, leita til bakhjarla og veita safninu stuðning á opinberum vettvangi
2009
Listveisla 1 er fjölfeldi á verkum 23ja myndlistarmanna, þ.e. kvenna, gefið út í 50 eintökum, og er hirslan utan um verkin sjálf listgripur. Ráðgert er að gefa út Listveislu 2 svo fljótt sem auðið er með verkum eftir karlmenn, síðan þá þriðju með verkum eftir blandaðan hóp alþýðulistarfólks og lærðra myndlistarmanna
2010
Nýstárleg hugmyndafræði kynnt þar sem viðteknum venjum í uppsetningu er ögrað með því að blanda saman framsækinni nútímalist, alþýðulist, vöruhönnun, handverki, leikföngum, minningum o.fl. Sýningin gefur vísbendingu um skilvirkni ólíkra hluta, hvernig hægt er að skapa litla menningarkima, smáheima, eða slá upp veislu fyrir augað, án þess að raska ró skoðandans til muna nema þeirra allra viðkvæmustu sem hafa allt á hornum sér!
2010
List og náttúra: samsláttur alþýðlegs hugvits og ummyndana náttúrunnar er viðfagnsefni tveggja sýninga, a.v. á verkum Hálfdáns Ármanns Björnssonar (d), Hlégarði í Aðaldal, sem bjargaði föllnu birki undan hraunhellum og gaf því nýtt líf, h.v. nákvæmri leit Guðrúnar Nielsen (d), Kópavogi, og Sveins Einarssonar (d) frá Hrjót í Eiðaþinghá, að samsvörun listar og handverks í grjóti, hrauni og sandsteini, þannig að samsett og tálguð verk þeirra eru líkt og sprottin úr þjóðtrú og náttúruvættum

