Safnasafnið

Lán á safngripum og verkum skv. safnalögum og varðveislusamningum Ástandsskoðun Skoða skal safngripi og vörsluverk í hvert skipti sem þeim er

Lán á gripum

Lán á safngripum og verkum skv. safnalögum og varðveislusamningum


Ástandsskoðun

Skoða skal safngripi og vörsluverk í hvert skipti sem þeim er pakkað inn til flutnings að og frá áfangastað. Gera skal skýrslu á sérstakt eyðublað þegar þeir eru lánaðir og þeim skilað, og bera saman við skoðun á áfangastað


Aðstæður

Safnið þarf að samþykkja sýningarstað eða rannsóknarrými sem er hugsað fyrir gripi þess og verk skv. varðveislusamningum. Taka skal tillit til öryggis, lýsingar og áhrifa sólar, raka og hita. Ljósmagn skal ekki fara yfir 250-300 Lux á höggmyndum og 150-200 Lux á málverkum og pappírsverkum. Æskilegur raki er 55% (RH) ef hitastig er 18-20 gráður á Celcíus. Mælingar þurfa helst að liggja fyrir, því húsnæði sem þjáist af miklum hita- og rakasveiflum, er ekki nothæft fyrir gripi í eigu eða vörslu safnsins


Umsókn lánþega

Lánþegi skal senda formlegt bréf um lán á einstökum gripum með tímaáætlun, ljósmynd af húsi og uppdrætti af sal eða rannsóknarrými, og fylgja skilyrðum eins og að neðan greinir:


Öryggismál

Á sýningarstað eða rannsóknarrými skal vera öryggiskerfi, beintengt í nálæga stjórnstöð eða farsíma, hreyfi- og reykskynjarar, gæsla innandyra á opnunartíma, og ljós eða annað fælingartæki um nætur, t.d. myndavélar eða vöktun öryggisfyrirtækis. Um öryggi í hýbýlum fer eftir samkomulagi


Flutningur gripa

Gripum skal pakkað inn í sýrufrían pappír og bóluplast, þeir fluttir í harðplast- eða krossviðarhirslum og varðir svampi, pappírs- eða frauðkurli. Stærri verk skal stífa af svo þau hreyfist ekki úr stað. Lánþegi semur við flutningsfyrirtæki um að keyra kassann beint á milli staða, og má hvorki færa hann á milli flutningabíla né láta hann standa utandyra, enda er ávallt hætta á skemmdum vegna veðurs eða óhappa. Lánþegi getur flutt gripi í eigin bíl ef þannig stendur á


Tryggingar

Alla gripi/verk skal tryggja með fullnægjandi hætti samkvæmt verðgildi og kröfum safnsins


Uppsetning gripa og niðurtekning - hnjask og viðbrögð

Gripi skal meðhöndla með varúð og nota skal bómullarhanska til að koma í veg fyrir smit af húðfitu og afmá óhreinindi strax. Ef gripir verða fyrir hnjaski, skal strax hafa samband við safnið og nærtækan fagmann sem getur brugðist rétt við aðstæðum. Taka skal ljósmyndir af skemmdum og skrá lýsingu af óhappi eða veittum áverka


Greiðslur

Lánþegi skal greiða tryggingarupphæð, efni og smíði á kassa (nema hann sé til í safninu), flutningsgjald og reikninga vegna hugsanlegra tafa eða mistaka. Ekki er tekið gjald fyrir lán á gripum en heimilt að innheimta fyrir undirbúningsvinnu í geymslu; einnig ef nauðsynlegt er að láta mann fylgja verkunum og koma þeim fyrir; taka út húsnæði og benda á lausnir; eða senda mann á vettvang til að meta skemmdir, búa um verk og flytja í safnið til viðgerðar


Undanþágur

Safnið metur frávik á reglum og semur við lánþega um hæfilegar verklags- og tímaáætlanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf