
Lista- og fræðimannsíbúð er í risi Kaupfélags Svalbarðseyrar (1900) sem var flutt á lóð Safnasafnsins árið 2006; hún er 67 m2, með sérinngangi á 2. hæð frá bílastæði, útbúin eins og “byggðasafn með andrúmslofti og rómantík liðinnar aldar” en þó með nútímalegu ívafi; í henni er forstofa, bað, eldhús með setkróki, samliggjandi borð- og skrifstofa með rúmi (196x86) og herbergi með hjónasæng (200x150) og 3 rúmum (172x75/160x75/95x45)
Íbúðin er sjálfstæð eining, án tengsla við aðra starfsemi safnsins, þ.á.m. sýningarhald; hún verður leigð frá og með 20. september, eina viku í senn, til 20. apríl. Skv. leigusamningi fær leigutaki aðstöðu til að vinna í sal við dans og tónlist, pappírsmyndir og handrit en er óheimilt að smíða, nota olíuliti og úðabrúsa eða önnur rokgjörn, rykertandi, smitandi, astma- og ofnæmisvaldandi efni; hið sama gildir um íbúðina; gæludýr eru ekki leyfð, reykingar ekki heldur. Í samningnum eru ákvæði um öryggi, innbrotsvörn, eldvarnir og flóttaleiðir, hljóðmengun, tryggingar, ábyrgð á persónulegum eigum, umgengni og lágmarksþrif; þá er leigutaka óheimilt að framleigja íbúðina eða bjóða til sín dvalargestum nema fyrir liggi samþykki gestgjafa. Innbrotsvarnakerfi er í húsunum
Vikuleiga íbúðar er 20.000 kr. með rúmfatnaði, nettengingu, grunnvöru í eldhúsi, aðgangi að þvottavél, sal og bókastofu. Nauðsynlegt er að leigutakar hafi bíl til umráða og sjái um sig sjálfir
Pantanir skulu staðfestar í tölvupósti og leigan millfærð þá, eða greidd strax við komu
Leigutakar sem vilja kanna listaverk safnsins og stunda rannsóknir sem gætu varpað nýju ljósi á þau, eða sinna verkefnum sem tengjast menningu og sögu héraðsins, geta fengið niðurstöður vinnu sinnar kynntar í máli og myndum í Svalbarðsstrandarstofu, á hæðinni fyrir neðan íbúðina, frá og með vorinu 2012, einnig í sýningaskrá og á heimasíðu sama ár
Gestgjafar eru Níels Hafstein og Magnhildur Sigurðardóttir, þau búa í Þinghúsinu sem er tengt safnbyggingunum
Yfir sumarið er íbúðin leigð innlendum og erlendum ferðamönnum nótt og nótt, og kostar fyrsta nóttin 20.000 kr. Morgunmatur er innifalinn og hægt að ganga að honum m.a. í kæliskáp. Gestgjöfum er ljúft að semja við gesti um fleiri nætur eftir efnum, aðstæðum og eftirspurn. Aðgangur að vinnusvæði fylgir ekki dvöl á sumrum

