Safnasafnið

Nýjar sýningar: 10. júlí - 4. september LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI Fréttatilkynning

Fréttir

Nýjar sýningar: 10. júlí - 4. september

Sólveig Aðalsteinsdóttir, Reykjavík  Án titils 2010 - Without title 2010 Ljósmyndir, teikningar / Photos, drawings (eign höfundar/owner, the artist 





Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Helsinki  Innsetning - Installation Ljósmyndir / photos (eign höfundar/owner, the artist 






Þóra Sigurðardóttir, Reykjavík Án titils 2011 - Without title 2011  Ljósmyndir, teikningar, hlutir (fundnir, mótaðir) photos, drawings, objects  (found and formed) (eign höfundar/owner, the artist  

LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI

Jan Voss, 2000 mílur að heiman, 1974, offset prentþrykk, 29,1 x 24,7 cm.
Safnasafnið á Svalbarðsströnd sýnir í Listasafninu á Akureyri.
Hringheimar
Í sumar taka Safnasafnið á Svalbarðsströnd og Listasafnið á Akureyri saman höndum í verkefninu „safn í safni“ en það byggist á því að sýna hluti úr safneign eins safns í öðru safni og varpa þannig ljósi á menningarsöguleg tengsl safnanna.
Safnasafnið sýnir nú verk Katrínar Jósefsdóttur (Kötu saumakonu) sem eru eigu Akureyrarbæjar og laugardaginn 2. júlí opnar Listasafnið á Akureyri sýningu sem ber heitið Hringheimar og samanstendur meðal annars af fjölmörgum verkum úr safneign Safnasafnsins sem skipt hefur verið upp í fimm smærri sýningar. Sýningarstjórar eru Harpa Björnsdóttir og Níels Hafstein
Sýningarnar búa yfir vitneskju um margs konar hringferla sem hverfast um íslenska myndlist, afmarkaða kima jafnt sem fjölfarin svæði, og birta mismunandi viðhorf, staðhætti og skoðanir. Í gömlu handritunum er heimssýnin ýmist víðtæk eða þröng og sérviskuleg, jafnvel bernsk; í grafíkverkunum og teikningunum kallast markviss vinnubrögð og öguð framsetning hugmynda og val á efni á við tilviljun stundarinnar og hrifnæmi augnabliksins. Í skúlptúrunum er sótt til eldri reynslu og þeir lagaðir að samtímanum, og í einni sérsýningunni er leitast við að gefa myndhugsuninni áþreifanlegan blæ og farið fram á ystu nöf í miðlun áhrifa sem verða til við nýjar lausnir í leikföngum, vísindum og tækni. Svo breitt tjáningarsvið fellur vel að stefnu Safnasafnsins, sem leitast við að eignast verk eftir alþýðulistamenn, börn, hagleiksmenn og einfara, sem og framsækna listamenn sem gera tilraunir sem skara alþýðulist eða eru unnin með þjóðleg minni í huga

Fréttatilkynning

Laugardaginn 7. maí kl 14 verða opnaðar margar nýjar sýningar

í Safnasafninu Svalbarðsströnd.


Þrenningarsjálfsmynd Sölva Helgasonar: Hreinlífur, Skírlífur, Dagbjartur. Þjóðminjasafn Íslands. Þjms. 8839

Ég er gull og gersemi,

gimsteinn elskuríkur.

Ég er djásn og dýrmæti,

Drottni sjálfum líkur.


Í Vestursal er sýning á myndverkum Sölva Helgasonar (1820 – 1895).

Sölvi Helgason, eða Sólon Íslandus eins og hann kallaði sig líka, er tvímælalaust einn af áhugaverðustu alþýðulistamönnum sem þjóðin hefur alið, heillandi utangarðsmaður í lífshlaupi sínu og listsköpun.

Flakkari, fræðimaður og listamaður, en líka kenjóttur sérvitringur sem fór á svig við mannanna lög og reglur. Hann ferðaðist um landið með allt sitt hafurtask á bakinu, samanbrjótanlegt borð, bækur og málunargræjur, gisti á bæjum og skildi stundum eftir blómaflúraða mynd í þakkarskyni.

Er sýningin á verkum Sölva unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands sem geymir eitt stærsta safn mynda eftir Sölva, en einnig eru nokkur verk fengin frá Landsbókasafninu og Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.

Þessi sýning er þáttur í verkefninu Söfn í söfnum, þar sem verk úr safneign eins safns eru sýnd í öðru safni, til að varpa ljósi á menningarsöguleg tengsl safnanna.
 
Í Austursal er sýning á verkum Katrínar Jósepsdóttur, eða Kötu saumakonu, þær eru fengnar að láni frá Listasafni Akureyrar í tengslum við verkefnið Söfn í söfnum, en 2. júlí mun svo opna sýning Safnasafnsins í Listasafni Akureyrar.


Veggmynd máluð með blaðgrænu eftir Elsu Dórótheu Gísladóttur.

Í Svalbarðsstrandarstofu er innsetning Elsu Dórótheu Gísladóttur, en hennar sýning teygir sig út í gróðurreitinn við hlið Safnasafnsins, sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Verk Elsu Dórótheu fjallar um gróður jarðar og lífsorkuna og er að hluta unnin með íbúum sveitarfélagsins og skólabörnum. Á opnunardaginn mun Elsa Dóróthea planta eplatrjám.



Í Norðursölum sýnir Hreinn Friðfinnsson innsetningu með bergkristöllum,  steingervingum og sérstakri, syngjandi tíðniskál, Andrea Maack sýnir teikningar og Erla Þórarinsdóttir sýnir olíumálverk og granítskúlptúra.


Steingervingur úr innsetningu Hreins Friðfinnssonar og granítskúlptúrar eftir Erlu Þórarinsdóttur.


Í Langasal sýnir Ragnhildur Stefánsdóttir innsetningu með verkum úr gifsi, gúmmíi og silíkoni, form sem byggja á líkama mannsins og líffærum.
 


Aðrir sýnendur eru Úlfar Sveinbjörnsson með útskorna fugla, Guðný Guðmundsdóttir með klippimyndir, Atli Viðar Engilbertsson með fólk úr pappa, Helgi Björnsson með tálgað fólk og húsdýr, Gloría López með útsaum, Björn Guðmundsson með útskorið og málað fólk, Hálfdán Ármann Björnsson með birkifólk og nemendur úr Hrafnagilsskóla sýna blómaskúlptúra undir áhrifum frá Sölva Helgasyni.

Í endurgerðri verslun Ásgeirs G. Gunnlaugssonar verða sýndar hannyrðir eftir Jóhönnu Níelsdóttur og Jóhönnu Bjarnadóttur, en margt áhugaverðra muna leynist í hirlsum verslunarinnar sem forvitnilegt er að skoða.
Að venju er svo sýning á skúlptúrum Ragnars Bjarnasonar, úrvali brúða úr Brúðusafninu og fjöldi annarra gripa úr safneign, í nýstárlegum myndheimum þar sem blandað er saman ólíkum hlutum úr fjölbreytilegum efnum svo úr verður ein heild.

Safnasafnið er opið daglega yfir sumarmánuðina frá 14 – 17, leiðsögn ef óskað er.

Safnvörðurinn tekur vel á móti gestum.
 
Mynd tekin af heimasíðu Trip Advisor

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf